Afmæli ..
14. maí 2008 kl. 19.28 | Óflokkað | 2 ummæliHvernig höndlið þið afmæli/afmælisveislur. Elsti strákurinn átti afmæli í dag og því eitthvað gotterí í boði .. ég get nú ekki beint sagt að ég hafi staðið mig vel yfir daginn þó ég hafi ekki farið í óhollustuna en þegar allir voru komnir heim voru múffur og ís í boði og ég hafði bara engann áhuga á að sleppa því að fá mér.
Verð í “fríi” þessa helgina og ætla að reyna að hreyfa mig eitthvað af viti. Stefni á að taka 20 km metrana hjólandi og svo 3 ferðir í næsta bæ ( 8 km hver ferð ). Eitthvað af vinum ætla að kíkja yfir þannig það verður tekinn smá dans líka
Ætla mér að ýta á stopp í smá stund ( 2 daga mest ) og halda svo áfram. Þykir ótrúlega erfitt að viðurkenna en ég þyrfti svo á því að halda að gráta smá - af engri ástæðu. Er búin að horfa á 4 stelpumyndir .. en tárin vilja engan vegin láta sjá sig. Ég hef meira að segja reynt að hugsa um verstu hlutina sem hafa gerst - en ekkert bólar á þeim tárum sem ættu að láta sjá sig. Vantar bara þessa “hreinsun” sem líkaminn fær við að gráta … einhverjar hugmyndir?
Fékk allt í einu “reiðiskast” á sjálfri mér í gærkvöldi og fór út að hjóla … hjólaði 7 km á hraðasta, tók mig 13 mín .. sem ég er nokkuð ánægð með því ég hef verið að taka 8km á 19 mín. Ætti að fara út aftur í dag, en tókst að slasa mig á löppinni í gær og bólgan er farin að láta sjá sig … þannig ég tek því rólega í dag, ét á mig gat … og redda svo öllu eftir 2 daga eftir að samviskubitið hefur nagað allt í sundur.
vonandi gengur ykkur betur en mér .. =)
Fyrsta færsla :)
12. maí 2008 kl. 18.05 | Óflokkað | 5 ummæliJæja, þá hef ég ákveðið að koma mér í gang um að blogga um megrunarferlið mitt og vonast til að það muni gefa mér smá meira spark í rassinn um að þurfa að standa mig örlítið betur hverja vikuna. Finnst algjörlega við hæfi að koma með eina mynd inn í fyrsta bloggi - tölvuteiknaða mynd sem er teiknuð miða við þyngd og hæð.
Fyrri manneskjan er í upphafs þyngd - hvernig ég leit út og seinni manneskjan er í markmiðs þyngd.

og svo önnur mynd þar sem er mynd hvernig ég lít út í dag, og svo markmiðs þyngd
Hýst hjá Blogg.is og knúið með WordPress, útlit Pool eftir Borja Fernandez.
Færslur og ummæli (RSS).
Valid XHTML and CSS. ^Efst^